Lífið

Sölva dreymir í sólbaði - myndband

Ellý Ármanns skrifar
Mynd/skjáskot youtube
Meðfylgjandi má sjá myndband með hugleiðingum Sölva Fannars skálds með meiru sem við ræddum við fyrr í vikunni. Eins og sjá má lætur hann sig dreyma í sólbaði á ensku. Við heyrðum í Sölva og spurðum hann út í gjörninginn.

Mannlegur á valdi hugsana sinna

„Ég komst í 15 mínútur í sólbað, dottaði fyrst í nokkrar mínútur svo er þetta, í algjörri hreinskilni, það sem fór í gegnum huga minn síðustu mínúturnar eftir að ég rankaði við mér aftur. Mér fannst þetta bara einstaklega fallegt móment, mjög mannlegt og ég hef dálæti á því að vera mannlegur - á valdi hugsana og kennda sem sumar hverjar liggja svo djúpt að maður skilur þær varla og getur meira að segja verið varnarlaus; berskjaldaður gagnvart þeim.

Meðtekur ófullkomleikann

Einn af, reyndar mörgum, uppáhalds frösunum mínum eru í bókinni „The Peaceful Warrior“ eftir Dan Millman, þar segir Sókrates, sem er persóna í bókinni: „People are not theirs thoughts, they think they are, and it brings them all kinds of sadness“ sem mætti útleggja til dæmis sem: Fólk er ekki það sem það hugsar, þau halda það, sem færir þeim alls kyns sorgir. Við verðum að læra að elska okkur alveg eins og við erum, meðtaka ófullkomleika okkar. Fegurð er ekki endilega fullkomnun, oft er mesta fegurðin sem við skynjum blanda af samræmi og ósamræmi. Við getum leyft okkur, alla vega stundum, að vera ekki alltaf samkvæm okkur sjálfum,“ sagði hann.



Tengdar fréttir

Kviknakinn á toppnum

Mynd af Sölva Fannari Viðarssyni þar sem hann stendur kviknakinn á mosavöxnu fjalli með sverð á milli fótanna vakti athygli okkar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.