Sport

Mayweather fær 3,6 milljarða fyrir bardaga helgarinnar

Mayweather og Maidana á blaðamannafundi í gær.
Mayweather og Maidana á blaðamannafundi í gær. vísir/getty
Hnefaleikakappinn Floyd Mayweather Jr. var launahæsti íþróttamaður heims á síðasta ári og hann fer vel af stað í ár.

Mayweather mætir Argentínumanninum Marcos Maidana í hringnum á laugardag og hann mun fá að minnsta kosti 3,6 milljarða íslenskra króna fyrir bardagann.

"Þetta sannar hvað hann færir íþróttum mikið, ekki bara hnefaleikum," sagði framkvæmdastjóri Mayweather Promotions, Leonard Ellerbe.

"Hann er stórkostlegur skemmtikraftur og hann er ástæðan fyrir því að það verður fullt hús og að milljónir muni kaupa sér aðgang að bardaganum."

Mayweather keppti tvisvar í fyrra og fékk fyrir það rúma 8 milljarða íslenskra króna.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×