Tónlist

Ritskoðað! Lagið má ekki heyrast

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson fær það veigamikla hlutverk í ár að semja þjóðhátíðarlagið fyrir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum sem fer fram um verslunarmannahelgina.

Í meðfylgjandi myndbandi má sjá tónlistarmanninn ræða um þjóðhátíð en í viðtali við Fréttablaðið fyrir stuttu sagði hann að lagið gengi undir vinnuheitinu Ljúft að vera til.

Í myndbandinu stríðir hann þjóðhátíðargestum aðeins með því að taka lagið en í þann mund sem tónarnir eru að fara að heyrast er hljóðið tekið af því lagið má ekki heyrast fyrr en það verður frumflutt í byrjun júní.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.