Lífið

Hlæjandi saman á hliðarlínunni

Létu myndbandið ekki á sig fá.
Létu myndbandið ekki á sig fá. Vísir/Getty
Hjónakornin Beyonce og Jay Z voru mætt á hliðarlinuna á körfuboltaleik í New York í gær. Einungis nokkrum klukkutímum eftir að myndband af Solange Knowles, systur Beyonce, ráðast á rapparann í lyftu fór á flug á netinu. 

Ekki virtust þau vera að láta fjölmiðlafárið í kringum birtinguna á sig fá og gerðu sitt besta til líta hress út á hliðarlínunni. Leikurinn var á milli Brooklyn Nets og Miami Heat og slógu þau á létta strengi sín á milli á meðan á leiknum stóð.

Ekkert er vitað um ástæðu þess að Solange reiddist rapparanum í lyftu á leiðinni heim frá Met-galakvöldinu í byrjun maí en hún ku einnig hafa rifist við vinkonu sína, fatahönnuðinn Rachel Roy, fyrr um kvöldið. 

Flott hjónakorn á körfuboltaleik.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×