Skoðun

Gerðu eins og ég geri

Eva Magnúsdóttir skrifar
Gerðu eins og ég geri

Það skiptir máli hvort við reimum á okkur hlaupaskóna og förum út að hlaupa eða hvort við bjóðum börnunum okkar í kvöldmat á skyndibitastað. Það segir mikið til um það hvernig við erum sem fyrirmyndir. Stundum hefur verið sagt að offita barna og hreyfingarleysi sé foreldravandamál. Við uppskerum nefnilega eins og við sáum.

Óvíða hafa börn og fullorðnir jafn mikil tækifæri til þess að hreyfa sig eins og í Mosfellsbæ. Hér er öflugt og fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf sem haldið er uppi af dugmiklum þátttakendum, sjálfboðaliðum og kröftugu foreldrastarfi. Við sjálfstæðismenn metum þetta starf mikils og ætlum áfram að styðja það myndarlega og tryggja að samstarf við íþrótta- og tómstundafélög taki mið af uppeldis-, forvarnar- og félagslegum gildum. Við munum í komandi kosningum leita leiða til að halda þátttökugjöldum barna og unglinga hófstilltum í góðu samstarfi við félögin. Við viljum einnig leggja mikla áherslu á stuðning við afreksíþróttir í samvinnu við íþróttafélög bæjarins en afreksmenn eru fyrirmyndir og draga fleiri iðkendur inn í félögin. Einnig viljum við styðja við verkefni sem mæta óskum barna og unglinga sem finna sig ekki í venjubundnu starfi félaganna.

Aðstöðumálin bætt

Áfram þarf að bæta aðstöðumál og fylgja eftir þeirri vinnu sem sett hefur verið af stað varðandi forgangsröðun framkvæmda við íþróttamannvirki í samstarfi við  íþrótta- og tómstundafélögin. Íþróttasalur er risinn sem gjörbreyta mun aðstöðu fimleikabarna og barna sem stunda bardagaíþróttir. Þessar deildir munu hefja æfingar í nýrri aðstöðu í haust.  Á næstu árum verður síðan lokið við að koma upp félagsaðstöðu fyrir Aftureldingu í nýju íþróttahúsi. Hið öfluga íþrótta- og tómstundastarf  er mikilvægur þáttur í uppbyggingu heilsueflandi samfélags, sem Mosfellsbær hefur markað sér sérstöðu með, fyrst íslenskra sveitarfélaga.

Við erum stolt af þeirri miklu uppbyggingu sem átt hefur sér stað í Mosfellsbæ á síðustu árum. Bæjarfélagið er fyrir vikið betur í stakk búið til að takast á við framtíðina. Á þessum trausta grunni viljum við áfram byggja bæinn okkar upp.  Kannanir sýna að fólki finnst best að búa í Mosfellsbæ. Það skiptir máli hverjir stjórna.

Fjölnota íþróttahús

Framundan eru verkefni sem snúa að áframhaldandi uppbyggingu tómstundamála hjá bæjarfélaginu. Áfram verður unnið að því að bæta aðstöðu fyrir íþróttir og tómstundir, haldið verður áfram að bæta aðstöðuna við íþróttamiðstöðvarnar í Lágafelli og að Varmá til að auka enn frekar á hreyfingu almennings og efla lýðheilsu bæjarbúa. Fyrir skömmu var skipaður starfshópur sem vinnur að því að þarfagreina og skoða möguleika á því að byggja fjölnota íþróttahús sem nýst gæti fyrir knattspyrnuiðkun og frjálsar íþróttir svo eitthvað sé nefnt.  Sjálfstæðismenn hyggjast fylgja eftir niðurstöðu starfshópsins um byggingu á fjölnota íþróttahúsi á næsta kjörtímabili nái þeir kjöri.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×