Innlent

Sagði eina konuna geðveika, aðra hafa framið sjálfsmorð og þriðju vera súludansmær

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Fyrrverandi framkvæmdastjóri Krossins segir Gunnar Þorsteinsson reglulega saka fólk um svik.
Fyrrverandi framkvæmdastjóri Krossins segir Gunnar Þorsteinsson reglulega saka fólk um svik. Vísir/GVA

„Ég fæ bara sms boð um að það sé almenn herkvaðning í krossinum,“ sagði Björn Ingi Stefánsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Krossins og einn þeirra sem bar vitni í meiðyrðamáli Gunnars Þorsteinssonar í Krossinum. Honum var gert að halda fræðslustund í Krossinum í kjölfar frétta sem birtust á vefmiðlinum Pressunni.

Björn sagði Gunnar hafa sagt sér frá því að þrjár konur væru að bera hann sökum, ein þeirra væri geðveik, ein þeirra hafi framið sjálfsmorð eða dáið úr alnæmi og sú þriðja væri súludansmær.

Björn sagði Gunnar reglulega bera á fólk, meðal annars sig sjálfan, að það væri svikult. „Ég á bágt með að gamall félagi skuli koma svona í bakið á mér. Að það sé spunninn slíkur vefur, það er með ólíkindum. Mér er blandað saman við fólk sem ég þekki ekki, hef ekki heilsað og ekki komið nálægt,“ sagði Björn og horfði á Gunnar, sem leit undan.

Björn sagðist þó hafa reynt að koma málum í faglegan farveg en segir hann Gunnar hafa þvertekið fyrir það allan tímann. Björn bar undir hann þrettán ára gamla sögu frá konu sem kom til hans og leitaði aðstoðar.

„Ég fékk þá bara yfir mig gusur og skammyrði og það endaði með því að ég þurfti að víkja frá,“ sagði Björn.

Málið tengist ásökunum á hendur Gunnari, þess efnis að hann hafi áreitt sjö konur í Krossinum. Gunnar hefur ávallt haldið því fram að þessar ásakanir tengist pólitík og valdabaráttu í söfnuðinum og haldið fram sakleysi sínu.

Pressan birti nokkrar fréttir af þessum ásökunum, sú fyrsta var 23. nóvember 2010 og krafðist Gunnar þess að vefmiðillinn drægi fréttirnar til baka en þáverandi ritstjóri, Steingrímur Sævarr Ólafsson sagði miðilinn standa við fréttirnar. Í kjölfar þessa kærði svo Gunnar. Aðalmeðferð málsins stendur yfir í Héraðsdómi Reykjavíkur.


Tengdar fréttir

Gunnar: Hjónabandið hvati til árása

Gunnar í Krossinum segir hjónaband hans og Jónínu Benediktsdóttur grunninn að því að nokkrar konur hafi sakað hann um kynferðisofbeldi.

Símhringingar og hótanir á talhólf

Ein kvennanna sem Gunnar í Krossinum hefur stefnt fyrir meiðyrði segir konurnar hafa verið hræddar við áreiti frá Gunnari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×