Bílar

Nýir bílar komnir yfir 4.000 á árinu

Finnur Thorlacius skrifar
BL er söluhæst bílaumboðanna, en þar fæst Renault Clio.
BL er söluhæst bílaumboðanna, en þar fæst Renault Clio.
Talsverð aukning hefur orðið á sölu nýrra bíla á árinu og gekk salan í maí vel. Frá 1.-24. maí seldust 1.556 bílar og fóru við það yfir fjögur þúsund bíla markið, eða nákvæmlega 4.020 bíla. Á þessum tíma árs selja bílaumboðin mikið af bílum til bílaleiga og skýrir það að sumu leiti út þessa miklu sölu í maí.

Búast má áfram við mikilli sölu til bílaleiga í þessum mánuði og kæmi ekki á óvart að sala nýrra bíla við enda hans næði hátt í 6.000 bíla og árið ekki hálfnað. Það þýðir ekki að endanleg sala bíla fari í 12.000 bíla árinu, en hægjast mun á sölunni þegar bílaleigurnar hafa fengið afgreidda sína bíla í vor og sumar.

BL söluhæst

Bílaumboðið BL hefur verið söluhæsta umboðið það sem af er ári og heldur toppsætinu þó svo Hekla hafi selt fleiri bíla dagana 1.-24. maí. BL seldi 319 bíla en Hekla 378 á þessum rúmlega 3 vikum og Toyota seldi 269 bíla.

Það er einmitt í þessari röð sem umboðin standa nú í heildarsölu ársins. BL hefur selt 883 bíla, Hekla 853 og Toyota 646. Þar á eftir koma Brimborg með 556 bíla, Askja með 393, Bílabúð Benna með 294, Suzuki með 213 og Bernhard með 182 bíla selda.






×