Lífið

Gwyneth Paltrow og Chris Martin búa ennþá saman

Chris Martin og Gwyneth Paltrow
Chris Martin og Gwyneth Paltrow Vísir/Getty
Gwyneth Paltrow og Chris Martin búa ennþá saman þrátt fyrir að hafa skilið að skiptum eftir tíu ára hjónaband í mars.

En parið býr enn saman í Brentwood og eyðir helgum saman í nýju húsi þeirra í Malibu.

Slúðurmiðlar hafa velt vöngum yfir því hvort parið sé að endurhugsa skilnaðinn, hugsanlega til þess að gefa hjónabandinu annan séns.

Nýlega sást til þeirra að hlæja saman í rómantískum kvöldverði í Kaliforníu. E! News segir parið búa saman til þess að gera skilnaðinn sem þægilegastan fyrir börnin sín, Apple og Moses.

„Þau hafa haft öryggi og vellíðan barnanna fyrir brjósti í gegnum allt saman,“ segir heimildamaður E!. „Þau hafa eytt miklum tíma saman sem fjölskylda og hafa engu breytt síðan þau tilkynntu að þau væru að skilja. Fyrir utan að taka af sér hringana, virðast þau nánari en nokkru sinni fyrr.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.