Heilsa

Munurinn á hveiti og hveiti

Rikka skrifar
Hveiti er ekki bara hveiti
Hveiti er ekki bara hveiti vísir/Getty
Hvort sem að þú ert með glúteinóþol eða langar bara til að breyta til og hvíla hvíta hveitið þá eru hér fimm næringarríkar mjöl- og hveititegundir sem að þú ættir að skoða.

Möndlumjöl

Möndlumjölið er prótínríkt og inniheldur nauðsynlegar fitusýrur auk þess að innihalda gott magn af E-vítamíni. Það er frábært að nota það eins og nú notar brauðrasp t.d á fiskinn eða í kjötbollurnar.

Kínóamjöl

Stútfullt af næringarefnum og inniheldur allar nauðsynlegu amínósýrurnar, semsagt frábær uppspretta prótíns. Kínóamjöl er upplagt til að rífa upp næringargildin kökum og kexi og þá sem helmingsmagn á móti venjulegu hveiti.

Sojamjöl

Inniheldur kalk, trefjar og þrefalt meira magn af prótíni en venjulegt hveiti. Það er upplagt að nota til að þykkja sósur og nota sem 1/3 á móti 2/3 af hveiti í gerlaust brauð.

Spelthveiti

Er framleitt úr svokölluðu “fornu korntegundinni” spelti. Það hefur örlítið sætara bragð og verða brauðin og kökurnar léttari í sér en þegar notast er við heilhveiti. Gætið þess þó að nota heilkorna spelt en ekki fínmalað því það er nánast á pari við hvítt hveiti. Speltið er frábært að nota við pizzubakstur og brauðgerð.

Byggmjöl

Er mjög trefjaríkt og hjálpar við að halda blóðsykrinum í jafnvægi. Það er frábært í pönnukökurnar og brauðið.








×