Lífið

Shia LaBeouf handtekinn

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikarinn Shia LaBeouf var handtekinn á sýningunni Cabaret í Studio 54 í New York í gær. 

Shia lét illa inni á sýningunni og ku leikarinn hafa áreitt leikara og áhorfendur í salnum en í aðalhlutverkum í sýningunni eru Michelle Williams og Alan Cumming. Þá er leikaranum einnig gefið að sök að hafa keðjureykt í salnum og hafði hann afar hátt áður en lögreglan leiddi hann út í járnum.

Shia hefur verið kærður fyrir ósiðlegt athæfi og fyrir að fremja misgerðir gegn leikurum og áhorfendum sýningarinnar. 

Blaðafulltrúi Shia hefur ekki tjáð sig um málið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.