Tónlist

Foo Fighters fer ótroðnar slóðir

Foo Fighters kemur fram á tvennum tónleikum í Suður-Afríku.
Foo Fighters kemur fram á tvennum tónleikum í Suður-Afríku. Vísir/Getty
Hljómsveitin Foo Fighters hefur tilkynnt að hún muni koma fram í Suður-Afríku síðar á árinu, en það verður í fyrsta sinn sem sveitin kemur fram þar. Dave Grohl og félagar koma þar fram á tvennum stórum tónleikum, annars vegar í Höfðaborg þann 10. desember og hins vegar í Jóhannesarborg þann 13. desember.

Hljómsveitirnar Kaiser Chiefs og BLK JKS fara í ferðalagið með Foo Fighters og hita upp á báðum tónleikunum.

Foo Fighters er ekki bókuð á marga tónleika það sem eftir er af árinu en hún vinnur einnig hörðum höndum að sinni áttundu hljóðversplötu sem mun ber titilinn Lanterns og kemur hún út síðar á árinu.

Í síðustu viku kom hljómsveitin fram á Firefly Music hátíðinni í Delaware og lék þar meðal annars nokkur tökulög. Hún lék tökulög á borð við Under Pressure eftir Queen, School´s Out eftir Alice Cooper, Miss You eftir The Rolling Stones og Ain´t Talkin Bout Love eftir Van Halen.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.