Heilsa

Láttu í þér heyra!

Rikka skrifar
Hefur þú skoðun?
Hefur þú skoðun? Mynd/skjámynd
Ný vefsíða um heilbrigðismál á Íslandi hefur litið dagsins ljós. Vefsíðan er sett á laggirnar í þeim tilgangi að hugmyndir almennings um heilbrigðiskerfið líti dagsins ljós á opinberum vettvangi.

Á vefsíðunni er upplagt að setja fram hugmyndir um úrbætur á heilbrigðissviðinu og jafnvel hvar skóinn kreppir. ,,Mikilvægt er að rödd almennings heyrist vel og skýrt og að á síðunni verði til vettvangur skoðanaskipta og hugmyndabanki sem hægt sé að vinna með.

Slíkt hefur gefist afar vel í öðrum verkefnum og vonumst við til að almenningur, fagfólk og stjórnvöld geti átt uppbyggilegt samtal á þessum vef." segir Teitur Guðmundsson, læknir og aðstandandi vefsíðunnar. 

Stefnt er svo að því að taka saman og leggja fram tillögurnar sem koma fram á síðunni og koma til stjórnvalda þann 1. október 2014. Við hvetjum því alla sem að hafa skoðun á málinu að láta í sér heyra.

Hér geturðu látið þína skoðun í ljós og skoðað aðrar








×