Lífið

Neitar framhjáhaldi með Jay Z

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Háværar sögusagnir hafa farið á kreik síðustu daga að söngkonan Mya og rapparinn Jay Z, eiginmaður söngkonunnar Beyoncé, hafi átt í ástarsambandi um árabil. Sögurnar kviknuðu eftir að Beyoncé breytti texti við eitt lag sitt á tónleikaferðalaginu On the Run.

Einn aðdáandi Myu spurði hana út í þetta á Instagram-síðu sinni og segir söngkonan að þessar sögur séu uppspuni frá upphafi til enda.

„Þyrstir heimildarmenn með engar sannanir og það eru fjölmiðlar - sérstaklega í dag,“ skrifar Mya.

„Ég er aldrei í öðru sæti, ég borga mína eigin reikninga, á mitt eigið plötuútgáfufyrirtæki, mína eigin umboðsskrifstofu, treysti á Guð og virði sjálfa mig og hjónaband of mikið til að standa í svona vitleysu,“ bætir hún við.

Jay Z hefur hins vegar ekkert jáð sig um hvort hann hafi haldið framhjá eiginkonu sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.