Heilsa

Svona fjarlægir þú inngróið hár

Rikka skrifar
Ertu með inngróið hár?
Ertu með inngróið hár? Mynd/Getty
Inngróin hár geta verið alveg ótrúlega ljót og leiðinleg að eiga við. Þau líta út eins og bólur á húðinni og getur ástandið stundum orðið sársaukafullt, sérstaklega þegar sýking kemur í hársekkinn.

Þá verður svæðið bólgið, rautt og heitt viðkomu. Þegar ástandið er orðið það slæmt er öruggast að leita til læknis.

Hægt er að eiga við inngróin hár heima en það þarf þó að fara varlega svo að ekki verði úr varanlegt ör eða opið sár.

Svona fjarlægir þú inngróið hár

Byrjaðu á því að fjarlægja dauðar húðfrumur með því að skrúbba líkamann eða svæðið með meðalgrófu saltskrúbbi.

Skolaðu hreinan þvottapoka upp úr eins heitu vatni og þú þolir og þrýstu á svæðið í kringum inngróna hárið. Gerðu þetta tvisvar til þrisvar daglega þar til að hárbroddurinn er kominn upp á yfirborðið. Aðeins þá geturðu tekið fram sótthreinsaðann plokkara og náð í hárendann og dregið það út.

Gott er að renna yfir svæðið með sótthreinsi og bíða rólega þar til að bólganá svæðinu hjaðnar.








×