Tónlist

Frumsýnt á Vísi: Þú ert með Sigríði Thorlacius í fókushlutverki

Ólöf Skaftadóttir skrifar
„Þetta er ávarp til íslenskrar tungu,“ segir Tómas R. Einarsson um lagið Þú ert, en myndbandið við lagið er frumsýnt hér á Vísi.

Fyrstu línurnar í kvæðinu eru:

Þú ert vömb og söl,

þú ert rök og þvöl,

þú ert græn og skökk

Textinn þykir einstaklega skemmtilegur og er eftir myndlistarmanninn Sigurð Guðmundsson.

Lagið er af nýjustu plötu Tómasar, Mannabörn, en á henni er að finna átján sönglög Tómasar R. í útsetningu Gunnars Gunnarssonar, sungin af Sigríði Thorlacius og Sönghópnum við Tjörnina.

Kvikmyndagerðarmaðurinn Jón Karl Helgason leikstýrði myndbandinu.

„Þetta er svart hvítt vídjó og Sigríður er þarna í fókushlutverki, hún svarar í rauninni kórnum alltaf - sem syngur á disknum, en hún er í aðalhlutverki frá upphafi til enda. Svo eru þarna stuttar myndir af okkur Gunnari og Sigtryggi,“ segir Tómas jafnframt, en hljóðfæraleik á plötunni annast Tómas R. Einarsson á kontrabassa, Gunnar Gunnarsson á píanó og Sigtryggur Baldursson á kóngatrommur.

„Við tókum upp í Hljóðrita í HFJ og Jón Karl kom þangað og filmaði í smá tíma. Svo tókum við auka sessjón síðar - þetta var gert í tvö skipti og síðan sat hann yfir þessu í tvo mánuði í fullu starfi og klippti þetta saman,“ segir Tómas og hlær.

Á disknum eru mörg af kunnari lögum Tómasar á borð við Stolin stef, Hjarta mitt og Þú ert – sem hoppaði inn á 15. sæti á vinsældarlista Rásar 2 þann 19. júlí og lyfti sér í 13. sætið laugardaginn 26. júlí. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.