Innlent

Papeyjarsmyglarar aftur dæmdir til fangelsisvistar

Atli Ísleifsson skrifar
Alls voru sex menn dæmdir í Papeyjarmálinu svokallaða.
Alls voru sex menn dæmdir í Papeyjarmálinu svokallaða. Vísir/Pjetur

Tveir menn, sem dæmdir voru fyrir fíkniefnasmygl í Papeyjarmálinu árið 2009, eiga yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi fyrir að hafa ráðist á karlmann í byrjun júlímánaðar síðastliðinn. Mennirnir brutu þar með skilorð en þeim var veitt reynslulausn 2012. RÚV greinir frá.

Hæstiréttur staðfesti þar með dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem mennirnir tveir eru dæmdir til að afplána annars vegar 600 daga og hins vegar 800 daga eftirstöðvar af dómnum sem þeir fengu fyrir fíkniefnasmyglið. Mennirnir eru tveir þeirra sex manna sem hlutu dóm í Papeyjarmálinu.

Mennirnir eru nú dæmdir fyrir að hafa svipt manni frelsi sínu, sett poka yfir höfuð hans og ekið honum að geymsluhúsnæði þar sem þeir lömdu hann ítrekað með kúbeini í höfuð og líkama. Fórnarlambið hlaut höfuðkúpubrot, nefbrot og ristarbrot, auk annarra áverka, svo sem skurði á enni og á kálfa, segir í dómnum.

Alls voru sex menn dæmdir í Papeyjarmálinu, þar sem reynt var að flytja mikið magn fíkniefna til landsins. Mennirnir voru dæmdir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa staðið saman að innflutningi á samtals 55 kíló af amfetamíni, 54 kíló af kannabis og 9.432 e-töflum til Íslands, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni.

Fíkniefnin voru flutt áleiðis til Íslands frá Belgíu með skútunni Sirtaki og var slöngubát af gerðinni Valiant siglt til móts við hana. Bátarnir mættust á hafi úti þann 18. apríl innan við þrjátíu sjómílur suðaustur af landinu og voru efnin þar flutt milli báta. Slöngubátnum var síðan siglt með efnin til Djúpavogs.


Tengdar fréttir

Papeyjarsmygl: Vilja skútumenn áfram í gæsluvarðhald

Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, gerir fastlega ráð fyrir því að krafist verði áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir tveimur mönnum úr Papeyjarsmyglinu svokallaða.

Von á Sirtaki til hafnar innan tíðar

Gert er ráð fyrir að varðskipið Týr komi að höfn í Eskifirði með meinta fíkniefnasmyglara úr smyglskútunni Sirtaki klukkan átta nú í morgunsárið. Stýrimenn og hásetar af varðskipinu sigla skútunni og varðskipið fylgir eftir, samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni.

Papeyjarsmyglið: Skútumenn áfram í gæsluvarðhaldi

Jónas Árni Lúðvíksson og Pétur Kúld Pétursson hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 12. júní en þeir eru grunaðir um að hafa siglt á gúmmíbát út í Papey til móts við skútuna Sirtaki til þess að sækja rúm hundrað kíló af fíkniefnum um miðjan apríl.

Réttað yfir meintum höfuðpaur í Papeyjarsmygli utan Íslands?

Hollendingurinn sem talinn er höfuðpaurinn í Papeyjarmálinu svokallaða gæti sloppið við réttarhald hér á landi verði frávísunarkrafa í máli hans samþykkt í Hæstarétti. Sleppi hann við réttarhald verður að öllum líkindum réttað yfir honum í Hollandi eða Belgíu.

Flæktur í stærstu fíkniefnamál sögunnar

Sigurður Hilmar Ólason sem nú situr í gæsluvarðhaldi í tengslum við umfangsmikið fíkniefnasmygl sem er í rannsókn hefur tengsl við Papeyjarsmyglið svokallaða líkt og Fréttablaðið sagði frá í morgun. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur hann einnig tengsl við Pólstjörnumálið sem kom upp árið 2007. Sigurður hefur verið umfangsmikill í fasteignaviðskiptum hér á landi en hann hlaut þriggja ára dóm fyrir aðild að smygli á þrjátíu kílúm af hassi til landsins árið 2001.

Hollendingurinn leigði skútuna á hálfa milljón

Dópsmyglararnir sem teknir voru nú um helgina staðgreiddu hálfa milljón króna fyrir tveggja vikna leigu á skútunni Sirtaki sem notuð var við smyglið. Þrír þeirra eru þessa stundina í Héraðsdómi Austurlands á Egilsstöðum þar sem þeir bíða þess að verða úrskurðaðir í gæsluvarðhald.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×