Fótbolti

Kristinn og félagar í erfiðum málum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kristinn Jónsson var á sínum stað í liði Brommapojkarna í dag.
Kristinn Jónsson var á sínum stað í liði Brommapojkarna í dag. Heimasíða Brommapojkarna
Kristinn Jónsson lék allan leikinn þegar Brommapojkarna og Kalmar gerðu 1-1 jafntefli í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

David Elm kom Kalmar yfir á 6. mínútu leiksins, en Gustav Sandberg Magnusson jafnaði metin á 53. mínútu og þar við sat.

Brommapojkarna er enn í botnsæti deildarinnar með aðeins níu stig, en liðið er sjö stigum frá öruggu sæti.

Kristinn hefur leikið alla 17 leiki Brommapojkarna í deildinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×