Shawn Marion ætlar að spila með LeBron í Cleveland Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. ágúst 2014 23:01 Shawn Marion kveður nú Rick Carlisle þjálfara Dallas. Vísir/Getty
Bandarískir fjölmiðlar greina frá því í kvöld að framherjinn Shawn Marion hafi ákveðið að semja við Cleveland Cavaliers og spila með liðinu í NBA-deildinni á komandi tímabili. Shawn Marion hefur spilað með Dallas Mavericks undanfarin ár og var með 10,4 stig og 6,5 fráköst að meðaltali í leik á síðustu leiktíð. Shawn Marion bætist í hóp þeirra LeBron James, Mike Miller og James Jones sem hafa einnig komið til Cleveland Cavaliers í sumar. Kevin Love mun senn bætast í hópinn og jafnvel Ray Allen ákveði hann að taka eitt tímabil í viðbót. Shawn Marion er 36 ára gamall en þessi 201 sm framherji hefur spilað í NBA-deildinni síðan 1999 með Phoenix Suns (1999-2008), Miami Heat (2008-2009), Toronto Raptors (2009) og Dallas Mavericks (2009-2014). Hann hefur spilað 1106 leiki í deildarkeppni og 103 leiki í úrslitakeppni og varð NBA-meistari með Dallas árið 2011. Shawn Marion er einn af fjórum leikmönnum í sögu NBA-deildarinnar sem hafa náð því að skora 17 þúsund stig, taka 9 þúsund fráköst, stela 1500 boltum og verja 1000 skot. Hinir eru Hakeem Olajuwon, Karl Malone og Kevin Garnett.
NBA Mest lesið Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Fótbolti Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Handbolti Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Enski boltinn Spilar áfram með Messi í Miami Fótbolti „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ Körfubolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Ungstirnið skallaði meistarana áfram Enski boltinn Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur Íslenski boltinn Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Körfubolti Fleiri fréttir „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ KR á toppinn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 92-93 | Fullkomin jólagjöf Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Rýndu í gamlar myndir: „Svakalega ertu kringlóttur í framan“ Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sara Rún með sigurkörfuna í ótrúlegri endurkomu Keflavíkur Sjá meira