Tónlist

Nýtt lag og myndband frá Kaleo

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Hljómsveitin Kaleo hefur sent frá sér nýtt myndband, við nýtt lag sem ber titilinn All The Pretty Girls. Lagið er jafnframt fyrsta smáskífulagið af næstu plötu sveitarinnar en hún er væntanleg á næsta ári.

Myndbandið var tekið upp fyrir örfáum vikum á Egilsstöðum og nágrenni og í Mývatnssveit. Það er unnið af teyminu Eyk sem að hefur einnig séð um fyrri tónlistarmyndbönd Kaleo.

Sveitin fékk í júnímánuði afhenta gullplötu fyrir sína fyrstu plötu sem er samnefnd hljómsveitinni. Platan kom út í lok nóvember og fékk frábærar viðtökur. Sveitin hefur verið á ferð og flugi undanfarna mánuði en einbeitir sér nú að lagasmíðum fyrir nýja plötu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.