Fótbolti

Heiðar Geir genginn í raðir Cambridge

Heiðar Geir er farinn til Englands.
Heiðar Geir er farinn til Englands.
Knattspyrnumaðurinn Heiðar Geir Júlíusson er genginn í raðir Cambridge City. Fótbolti.net greinir frá þessu.

Cambridge leikur í Southern Football League Premier Division, sjöundu efstu deild á Englandi, en liðið situr nú í öðru sæti deildarinnar með sex stig eftir tvo leiki.

Heiðar Geir, sem fagnar 27 ára afmæli sínu á morgun, hefur komið víða við á ferlinum. Hann lék síðast með Ham Kam í 1. deildinni í Noregi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×