Lífið

Justin Timberlake derhúfa á sex þúsund krónur

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Varningur til sölu í Kórnum.
Varningur til sölu í Kórnum. Vísir/Stefán Árni
Teymi Justin Timberlake hefur til sölu ýmsan varning á tónleikunum í Kórnum. Eflaust munu fjölmargir tónleikagestir nota tækifærið og kaupa sér minjagrip um kvöldið í Kórnum.

Dýrasta varan er hettupeysa á tólf þúsund krónur en þar á eftir bolir og derhúfur sem kosta sex þúsund krónur. Stuttbuxur kosta fimm þúsund krónur og annað minna.

Þá má kaupa skotglas, iPhone símahulstur, þverslaufu, lyklakippu, armband og veggspjald. Verðskrána í heild sinni má sjá hér að neðan.

Verðskráin

Hettupeysur 12.000 kr

Bolir 6.000 kr

Derhúfa 6.000 kr

Stuttbuxur - Hot pants 5.000 kr

Tónleikadagskrá 3.000 kr

Bolli 3.000 kr

Skotglas 3.000 kr

iPhone 5 símahulstur 2.000 kr

Þverslaufa 2.000 kr

Lyklakippa 1.000 kr

Armband 1.000 kr

Veggspjald 1.000 kr

GusGus - Mexico CD 2.000 kr


Tengdar fréttir

„Var svolítið eins og að taka strætó á busaballið"

Thelma Einarsdóttir og Davíð Valsson eru mætt á Justin Timberlake tónleikana í Kórnum. Þau lögðu bílnum sínum við Smáralind og tóku strætó að Kórnum. Þeim fannst þau heldur eldri en hinir gestirnir í strætóinum.

GusGus byrjuð: Salurinn að fyllast

Töluverður kliður er í salnum í Kórnum þar sem GusGus hóf leik upp úr klukkan hálf átta. Íslenska hljómsveitin á að koma gestum í gírinn áður en Justin Timberlake stígur á stokk klukkan 21.

Sérstakur safabar fyrir Justin

Samkvæmt heimildum Vísis hefur fyrirtækið Joe & The Juice opnað safabar baksviðs á tónleikum Justin Timberlake.

Stemningin inni í Kórnum

Fjölmargir eru komnir inn í salinn þótt Gus Gus hefji ekki leik fyrr en klukkan 19:30.

„Við ætlum að dansa til að gleyma“

"Útlitið segir nú ekki allt,“ sögðu tveir grjótharðir aðdáendur Justin Timberlake, fyrir utan Kórinn í kvöld. Þeir voru á leiðinni á tónleika með popparanum.

„Hann er mjög sætur"

"Við erum mjög spenntar fyrir tónleikunum,“ sögðu fjórar vinkonur fyrir utan Kórinn í kvöld. Hópurinn var á leiðinni á tónleika með stórstjörnunni Justin Timberlake í Kópavoginum.

Stærstu tónleikar sem haldnir hafa verið

Viðbúnaðar vegna tónleika stórstjörnunnar Justin Timberlake er sá mesti sem þekkist í kringum tónleika hér á landi og aðdáendur sem keyptu miða voru mættir snemma á tónleikastaðinn, sumir fimm klukkutímum áður en Timberlake stígur á svið.

Halda mikið upp á Justin Timberlake

Þessar stúlkur segjast vera miklir aðdáendur söngvarans. Þær mættu snemma, voru komnar fyrir utan Kórinn talsvert löngu fyrir opnun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.