Lífið

Sérstakur safabar fyrir Justin

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Justin Timberlake þykir vel til fara.
Justin Timberlake þykir vel til fara. Vísir/Getty
Samkvæmt heimildum Vísis hefur fyrirtækið Joe & The Juice opnað safabar baksviðs á tónleikum Justin Timberlake í íþróttahúsinu Kórnum í Kópavogi.

Safabarinn ku hafa verið settur upp að ósk bandaríska hjartaknúsarans fyrir Justin og teymi hans. Þá skellti söngvarinn sér í verslunarferð í Skeifuna í gær eins og Vísir greindi frá fyrr í dag.

Justin stígur á svið klukkan 21 en upphitun Gus Gus hefst klukkan 19:30. Töluverð umferð er á svæðið en fólk er hvatt til að ganga og hjóla eigi það þess kost, ferðast mörg saman í bíl eða taka strætó.

Hægt er að horfa á tónleika Justins í beinni útsendingu á netinu.


Tengdar fréttir

Halda mikið upp á Justin Timberlake

Þessar stúlkur segjast vera miklir aðdáendur söngvarans. Þær mættu snemma, voru komnar fyrir utan Kórinn talsvert löngu fyrir opnun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.