Lífið

Tónleikagestir að gera sig klára

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Landsmenn bregða á leik á Instagram.
Landsmenn bregða á leik á Instagram. Vísir/Samsett
Um 19 þúsund Íslendingar bíða spenntir eftir tónleikum Justin Timberlake í Kórnum í kvöld.

Danskar mæðgur voru þær fyrstu til að mæta á svæðið í Kórahverfinu eins og Vísir greindi frá fyrr í dag. Um hálf fimm voru um tuttugu manns í röðinni en ansi kalt er í Kórnum.

Flestir hita upp í heimahúsi áður en haldið er á vettvang. Margir deila tilhlökkun sinni með vinum og vandamönnum á samfélagsmiðlum. Hvetur Vísir landsmenn til að deila skemmtilegum myndum og sögum, hvort sem er á Facebook, Instagram eða Twitter, með merkinu #JTKorinn. Vísir mun birta þau skemmtilegustu á vefnum í allt kvöld.

Hér að neðan má sjá kveðjur frá landsmönnum í tilefni tónleikanna í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.