Sport

Óvænt tap hjá New England Patriots | Öll úrslit gærdagsins

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Lamar Miller fagnar snertimarki sínu í sigrinum á New England Patriots í gær.
Lamar Miller fagnar snertimarki sínu í sigrinum á New England Patriots í gær. Vísir/Getty
New England Patriots tapaði nokkuð óvænt gegn Miami Dolphins í fyrstu umferð NFL-deildarinnar í gær þrátt fyrir að hafa verið 20-10 yfir í hálfleik á Sunlife-vellinum í Miami.

NFL-deildin fór af stað síðasta fimmtudag þegar ríkjandi meistararnir, Seattle Seahawks unnu sannfærandi sigur á Green Bay Packers á heimavelli. Það voru alls þrettán leikir á dagskrá í gær en umferðinni lýkur í nótt þegar Detroit Lions tekur á móti New York Giants og leik Arizona Cardinals og San Diego Chargers.

Hlutirnir byrjuðu vel fyrir Tom Brady og félaga í Patriots en þeir komust í 20-10 undir lok fyrri hálfleiksins. Það var hinsvegar allt annað Miami lið sem kom út í seinni hálfleik en heimamenn höfðu betur 23-0 í seinni hálfleik og unnu að lokum 33-20 sigur. Þetta var í fyrsta sinn í ellefu ár sem Patriots tapa fyrsta leik tímabilsins.

Boðið var upp á háspennu í Atlanta þar sem nágrannaslagur fór fram þegar Atlanta Falcons tók á móti New Orleans Saints. Liðin skiptust á að ná forskotinu í fjórða leikhluta þangað til Matt Bryant, sparkari Atlanta jafnaði metin með vallarmarki þegar leikklukkan rann út. Bryant varð síðan hetja liðsins í framlengingu þegar hann skoraði annað vallarmark sem tryggði liðinu 37-34 sigur.

Í Denver mætti Peyton Manning sínum gömlu félögum í Indianapolis Colts og fékk Peyton sannkallaða draumabyrjun en Denver komst í 24-0 um miðbik annars leikhluta. Leikmenn Colts voru hinsvegar ekkert á því að gefast upp og náðu að minnka muninn í sjö stig í stöðunni 24-31 en lengra komust þeir ekki.

Með sigrinum varð Peyton Manning aðeins annar leikstjórnandinn í sögu deildarinnar sem hefur unnið sigur á öllum liðum deildarinnar á eftir hinum goðsagnarkennda Brett Favre.

Þá varð Houston Texans við áfalli í gær í 17-6 sigri á Washington Redskins en nýliðinn Jadeveon Clowney fór meiddur af velli í fyrri hálfleik og missir líklegast af næstu 4-6 leikjum. Clowney sem er varnarmaður var valinn með fyrsta valrétt af Texans í nýliðanvalinu í vor.

Fortíð og framtíð Indianapolis Colts.Vísir/Getty
Úrslit gærdagsins:

Atlanta Falcons 37-34 New Orleans Saints

Baltimore Ravens 16-23 Cincinnati Bengals

Chicago Bears 20-23 Buffalo Bills

Houston Texans 17-6 Washington Redskins

Kansas City Chiefs 10-26 Tennessee Titans

Miami Dolphins 33-20 New England Patriots

Philadelphia Eagles 34-17 Jacksonville Jaguars

New York Jets 19-14 Oakland Raiders

Pittsburgh Steelers 30-27 Cleveland Browns

ST Louis Rams 6-34 Minnesota Vikings

Dallas Cowboys 17-28 San Fransisco 49ers

Tampa Ba Buccaneers 14-20 Carolina Panthers

Denver Broncos 31-24 Indianapolis Colts

Vernon Davis átti flottan leik í öruggum sigri á Dallas Cowboys í gær.Vísir/Getty
Myndbönd af NFL.com:

Öll snertimörk gærdagsins

Julius Thomas var frábær í gær

Frábært snertimark hjá Cordarrelle Patterson

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×