Sport

Ítalskur þjálfari stýrir karla- og kvennaliði Stjörnunnar í blaki

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mynd/Stjarnan
Stjarnan hefur samið við Ítalann Puya Montazemi um að þjálfa blaklið félagsins.

Montazemi, sem er 32 ára menntaður og reynslumikill þjálfari, mun þjálfa meistaraflokk karla og kvenna og 3. flokk karla og kvenna. Hann hefur lengst af starfað sem þjálfari í Perugia héraði á Ítalíu.

Montazemi er væntanlegur til landsins um helgina, en tekur til starfa á mánudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×