Sport

Heyrnarlaus leikmaður skoraði í opnunarleik NFL-deildarinnar

Coleman skorar hér snertimarkið sitt í nótt.
Coleman skorar hér snertimarkið sitt í nótt.
Hlauparinn Derrick Coleman hélt áfram að endurskrifa söguna í leik Seattle Seahawks og Green Bay Packers í NFL-deildinni í gær.

Coleman er fyrsti heyrnarlausi sóknarmaðurinn í sögu deildarinnar og hann minnti á sig þegar hann skoraði snertimark í öruggum 36-16 sigri síns liðs, Seattle, í gær.

Coleman er líka aðeins þriðji heyrnarlausi maðurinn í sögu deildarinnar og sá eini sem hefur tekið þátt í Super Bowl-leiknum.

Hann skoraði sitt fyrsta snertimark í deildinni í desember í fyrra en skoraði strax í fyrsta leik núna. Þessi 23 ára strákur er að verða stærra vopn í liði meistaranna.

Hér að neðan má sjá smá umfjöllun um Coleman.

NFL

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×