Lífið

Amal er ekki ólétt

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Sögusagnir um að lögfræðingurinn Amal Alamuddin og leikarinn George Clooney ættu von á sínu fyrsta barni saman fóru á flug í gær.

Stan Rosenfield, blaðafulltrúi Georges vísar þessum sögusögnum á bug.

„Amal er ekki ólétt,“ segir hann.

Sögurnar fóru á kreik eftir að myndir náðust af Amal í víðum síðkjól og töldu margir að það gæfi til kynna að hún væri barnshafandi.

Tímaritið InTouch gekk svo langt að vitna í ónefndan heimildarmann sem sagði að Amal væri komin þrjá mánuði á leið.

Amal - ekki ólétt.vísir/getty





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.