Vondir hlutir sem eru gerðir við gott fólk Dagrún Aðalsteinsdóttir skrifar 12. september 2014 11:51 Málflutningur í grein líkt og hjá Frosta í Fréttablaðinu 11.09.14 sýnir afar svarthvíta mynd af ástandinu í Mið-Austurlöndum. Frosti vitnaði meðal annars í viðtal sem var tekið við sendiherra Írans sem mér þótti afar jákvæð viðbót í fréttaumfjöllunina um átökin í Mið-Austurlöndum sem hefur verið afar einsleit. Einstrengingsleg sýn úr vel smurðu hjóli Bandaríkjanna sem eru að undirbúa réttlætingu á frekari hernaðaríhlutun hefur einkennt allan fréttaflutning. Orðræða Frosta einkennist af því sem við sjáum daglega í fréttum sem miðar að því að fylla alla slíkum ótta gagnvart íslam, svo mótbárurnar gagnvart innrás og dauðsföllum fjölda saklausra borgara í Mið-Austurlöndum verði engar eða litlar. Innrásir og ofstæki Bandaríkjamanna eru náttúrulega réttmætar og tengjast guði sé lof ekki trúarbrögðum heldur frelsi og lýðræði er það ekki? Ég ætla ekki að fara að réttlæta ofbeldi öfgahópa í Mið-Austurlöndum en það er líka fáránlegt að slíta það ofbeldi frá orsakasamhenginu. Frá innrás Bandaríkjamanna inn í Írak 2003 hefur ofbeldið eingöngu stigmagnast. Tilgangur þeirrar innrásar var að steypa af stóli stjórnvöldum sem þeir höfðu hjálpað að komast til valda til að byrja með. Það er ekkert eðlilegt við það að land hafi hernaðarítök yfir öðru landi í rúm 10 ár, byggð á eigin sérhagsmunum. Þeir hópar sem spretta upp til að reyna að berjast gegn þessu ranglæti sem heimurinn með þögn sinni samþykkir eru allir kallaðir hryðjuverkamenn. Munurinn á ofbeldi Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum og öfgahópa eru valdahlutföllin. Bandaríkin hafa þvílikt vald og bera ábyrgð á það miklu mannfalli saklausra borgara að gangvart alþjóðasamfélaginu þurfa þeir að reyna hylma yfir það, en seinni hópurinn sem hefur mun minna hernaðarvald og reynir að magna upp ótta í þeirri von að öðlast frekari völd. Bandaríkin reyna sitt besta til að vídeó af þeirra voðaverkum leki ekki en öfgahóparnir sýna markvisst sín. Ofbeldi beggja er algjör hryllingur en að loka augunum gagnvart þeirri ógn sem Bandaríkjamenn eru gagnvart heiminum er fullkomið dómgreindarleysi. Nýlega byrti Human Rights Watch rannsókn gerða af Columbia Law School sem bar titilinn Illusion of justice: Human rights abuses in US terrorism prosecutions. Skýrslan fjallar um hvernig Bandaríkjamenn hafa með ofsóknum sínum skapað öfgahópa þar sem engir voru fyrir. En Frosti minnist ekkert á fangabúðir eins og Guantanamo Bay þar sem mönnum hefur verið haldið í mörg ár án dóms og laga og pyntaðir, sumum hefur verið sleppt en margir eru enn í haldi. En þessar aðferðir og það að nota dróna- mannlausar stríðsvélar til að slátra fólki kerfisbundið er allt réttlætanlegt því Bandaríkin eru að varðveita lýðræðið. Er það þess vegna sem þeir dæma Bradley Manning í fangelsi fyrir að sýna vídeó af slátrun á saklausu fólki og gögn sem sýndu að mannfall saklausra borgara var mun hærra en Bandaríkjamenn héldu fram. Þurfti Edward Snowden að flýja land sitt og heimili fyrir að sýna hversu njósnir og innrásir bandarískra stjórnvalda á einkalífið væru öfgafullar vegna þess að það er verið að vernda lýðræðið? Hvernig eigum við að geta kynngt þessum réttlætingum. Bandaríkin hafa verið að glíma við efnahagsvanda og lélegt félagskerfi sem hefur skapað ókyrrt ástand heima fyrir, þá er nú gott að eiga sameiginlegan óvin, ekki er verra að hann sé ríkur af jarðefnum eins og olíu. Stríðið í Mið-Austurlöndum hefur aldrei snúist um lýðræði heldur sérhagsmuni, þar sem átök hafa orðið að peningamaskínu, og hernaður boðinn út eins og hvert annað verkefni. Hvað kynndir undir ofbeldið og fær gott fólk til að gera vonda hluti eins og Frosti orðaði það, ótti og óöryggi líkt og við sáum í Seinni heimstyrjöldinni. Óttinn og óöryggið á báða bóga fær gott fólk til að missa samkenndina. Ofbeldi leiðir af sér ofbeldi og tengjast trúarbrögð því ekki neitt og er ofureinföldun á ástandinu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Tengdar fréttir Gott fólk sem gerir vonda hluti Í dag er 11. september – dagsetning sem ég tengi ósjálfrátt við hryðjuverk og trúarofstæki. Í helgarblaði Fréttablaðsins las ég viðtal við Madsjíd Nili, mjög viðkunnanlegan sendiherra Írans á Íslandi. 11. september 2014 07:00 Mest lesið Er rúmdýnan þín hægt og rólega að murka úr þér líftóruna? Gunnar Dan Wiium Skoðun Orðræða seðlabankastjóra veldur mér áhyggjum Ágúst Bjarni Garðarsson Skoðun Skynsemi Miðflokksins Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Er Miðflokkurinn fyrir ungt fólk? Anton Sveinn McKee Skoðun Opið bréf til fjölmiðla Magnús Guðmundsson Skoðun Svarar ekki kostnaði að bjarga sjálfum sér Kári Helgason Skoðun Kæra sig ekki um evruna Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Aftur til fortíðar Birta Karen Tryggvadóttir Skoðun Er padda í vaskinum? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Það er verið að hafa okkur að fíflum. Davíð Bergmann Skoðun Skoðun Skoðun Um mennsku og samfélag Bolli Pétur Bollason skrifar Skoðun Er rúmdýnan þín hægt og rólega að murka úr þér líftóruna? Gunnar Dan Wiium skrifar Skoðun Sársaukafull vaxtarmörk Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi Miðflokksins Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Tölum íslensku Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Er Miðflokkurinn fyrir ungt fólk? Anton Sveinn McKee skrifar Skoðun Svarar ekki kostnaði að bjarga sjálfum sér Kári Helgason skrifar Skoðun Um orkuskort, auðlindir og endurvinnslu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Er padda í vaskinum? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Neikvæð samskipti barna og ungmenna á samfélagsmiðlunum Þórarinn Torfi Finnbogason skrifar Skoðun Rannsökum og ræðum menntakerfið Kolbrún Þ. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæra sig ekki um evruna Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til fjölmiðla Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Horfið á möguleikana í samfélagslegri ábyrgð Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Aftur til fortíðar Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Að kjarna orku þjóðar Ísak Einar Rúnarsson skrifar Skoðun Orðræða seðlabankastjóra veldur mér áhyggjum Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Flogið á milli landa á endurnýjanlegri orku: Draumsýn eða Raunveruleiki? Gnýr Guðmundsson skrifar Skoðun Það er verið að hafa okkur að fíflum. Davíð Bergmann skrifar Skoðun Útboð á Fjarðarheiðargöngum Hildur Þórisdóttir skrifar Skoðun Hvert á að fara með íslenskt þjóðfélag? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Svikin loforð gagnvart börnum? Hildur Rós Guðbjargardóttir skrifar Skoðun Að búa til steind getur haft skelfilegar afleiðingar! Elínrós Erlingsdóttir skrifar Skoðun Hvar eru sálfræðingarnir? Pétur Maack Þorsteinsson skrifar Skoðun Íslenska er ekki eina málið Lilja Magnúsdóttir skrifar Skoðun Hvar er grunnskólinn? Kristján Hrafn Guðmundsson skrifar Skoðun Er lýðræðislegt að senda vopn til Úkraínu? Hildur Þórðardóttir skrifar Skoðun Það á ekki að vera dekur að geta sótt sér sálfræðiþjónustu Ólafía Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Um bókun 35, EES samninginn, Evrópusambandið og Bretland Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Húsnæði fyrir fólk, ekki fjárfesta Gísli Rafn Ólafsson skrifar Sjá meira
Gott fólk sem gerir vonda hluti Í dag er 11. september – dagsetning sem ég tengi ósjálfrátt við hryðjuverk og trúarofstæki. Í helgarblaði Fréttablaðsins las ég viðtal við Madsjíd Nili, mjög viðkunnanlegan sendiherra Írans á Íslandi. 11. september 2014 07:00
Skoðun Neikvæð samskipti barna og ungmenna á samfélagsmiðlunum Þórarinn Torfi Finnbogason skrifar
Skoðun Flogið á milli landa á endurnýjanlegri orku: Draumsýn eða Raunveruleiki? Gnýr Guðmundsson skrifar