Forstjóri Ferrari hættir í fússi Finnur Thorlacius skrifar 10. september 2014 15:35 Marchionne forstjóri Fiat-Chrysler og Montezemolo nýhættur forstjóri Ferrari.
Það er sjaldnast vænlegt til áframhaldandi starfa að rífast heiftarlega við yfirmann sinn. Það gerði þó forstjóri Ferrari, Luca Montezemolo, en hann hefur ekki alsendis verið sammála forstjóra Fiat-Chrysler undanfarið. Ferrari er í 90% eigu Fiat-Chrysler og Marchionne ræður ferðinni á endanum og ágreiningur milli forstjóranna gat eiginlega ekki endað öðruvísi en með brotthvarfi Montezemolo. Montezemolo sagði við brotthvarf sitt að Ferrari væri nú orðið að amerísku fyrirtæki og þar ætti hann ekki lengur heima. Hann hefur nokkuð fyrir sér í því þar sem annar fótur Fiat-Chrysler er nú kominn til Bandaríkjanna og höfuðstöðvar sameinaðs félags (Fiat Chrysler Automobiles, FCA) er nú flutt til Michigan í Bandaríkjunum. Chrysler er stærsti hluti Fiat-Chrysler samstæðunnar, sem einnig telur reyndar merki eins og Alfa Romeo, Lancia og Ferrari. Montezemolo er búinn að vinna hjá Ferrari í 40 ár, eða frá 1974 og hann á stærstan þátt í velgengni Ferrari á undaförnum áratugum og þá ekki síst velgengni í Formúlu 1. Gengið þar nú er samt ein helsta ástæðan fyrir óánægju Marchionne með forstjóra Ferrari, Luca Montezemolo. Annar ágreiningur er þó á milli forstjóranna. Montezemolo hefur rekið þá stefnu Ferrari að takmarka framleiðsluna við 7.000 bíla á ári og með því viðhalda háu verði þeirra og eftirspurn. Marchionne vill auka framleiðsluna til muna og keppa með því við lúxusmerki Volkswagen samstæðunnar, þá helst Lamborghini. Marchionne vill að auki færa Ferrari nær Fiat-Chrysler og að einhverju leiti færa þekkingu, íhluti og smíði á milli merkjanna, en það hefur Montezemolo alls ekki viljað gera heldur halda sjálfstæði Ferrari sem mestu. Luca Montezemolo og Michael Schumacher á góðri stundu.
Mest lesið Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Erlent Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Erlent Draumurinn að fríbúðir skjóti upp kollinum um alla borg Innlent Nýliðar hlakka til að láta að sér kveða: „Finnst vanta fólk eins og mig“ Innlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Innlent Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Erlent Listamaðurinn Jón Gnarr hættir og pólitíkusinn tekur við Innlent Ekki hægt að aldursskipta börnum á Stuðlum í miðjum stormi Innlent Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Erlent