Lífið

Sumarfríið ónýtt því það fór ekki á Facebook

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Fimmta þáttaröðin af Stelpunum verður frumsýnd á Stöð 2 annað kvöld.

Til að gefa áhorfendum smá forskot á sæluna sýnir Lífið á Vísi atriði úr þættinum þar sem leikkonan Thelma Marín Jónsdóttir og leikarinn og tónlistarmaðurinn Björn Jörundur fara á kostum.

Thelma túlkar konu sem blöskrar það að eiginmaður hennar hafi ekki látið neinar myndir né stöðuuppfærslur úr sumarfríinu á Facebook og því hafi fríið verið farið til einskis.

Sjón er sögu ríkari.


Tengdar fréttir

Ofnæmiskonan snýr aftur í Stelpunum

Gamanleikkonur Íslands sameinast á ný í Stelpunum. Leikstjóri þáttanna segir gamla karaktera skjóta upp kollinum en einnig sé fullt af nýjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×