Fjölnir og Stjarnan skildu jöfn, markalaus, í frestuðum leik í 20. umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í Grafarvoginum í dag, úrslit sem eru ágæt fyrir bæði lið.
Fjölnismenn fengu algjört dauðafæri til að skora á 60. mínútu leiksins þegar ÞórirGuðjónsson fékk sendingu inn fyrir vörn Stjörnunnar en fór ævintýralega illa með færið.
Þórir hefði hæglega getað rölt með boltann að Ingvari í markinu og reynt að koma boltanum framhjá honum, en hann var svo óheppinn að stíga á boltann sem gerði varnarmönnum Stjörnunnar kleift að komast í milli.
Þetta er eitt af klúðrum sumarsins í Pepsi-deildinni, en þetta ótrúlega atvik má sjá í spilaranum hér að ofan.
Er þetta klúður sumarsins í Pepsi-deildinni? | Myndband
Tengdar fréttir

Umfjöllun, viðtöl, myndir og einkunnir: Fjölnir - Stjarnan 0-0 | Stjarnan tapaði dýrmætum stigum
Stjarnan tapaði dýrmætum stigum í toppbaráttunni í kvöld.