Lífið

Á von á fjórða barninu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Fatahönnuðurinn Kimora Lee Simmons á von á sínu fjórða barni samkvæmt heimildum tímaritsins Us Weekly. 

Þetta verður fyrsta barn Kimoru með núverandi eiginmanni sínum, Tim Leissner, en þau gengu í það heilaga í febrúar á þessu ári.

Kimora á fyrir dæturnar Ming, fjórtán ára, og Aoki, tólf ára, með fyrrverandi eiginmanni sínum, Russell Simmons, en þau voru gift á árunum 1998 til 2006. 

Þá á hún soninn Kenzo, fimm ára, með leikaranum Djimon Hounsou en þau hættu saman árið 2012 eftir rúm fimm ár saman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×