Lífið

Sækir um skilnað við söngvarann

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikkonan Paula Patton er búin að sækja um skilnað við tónlistarmanninn Robin Thicke en þau skildu að borði og sæng í febrúar á þessu ári eftir átta ára hjónaband.

Skilnaðurinn kom í kjölfar VMA-verðlaunahátíðarinnar þar sem Robin tróð upp með Miley Cyrus. Var atriðið afar umdeilt og stuttu seinna byrjuðu sögur að fara á kreik um að Robin hefði haldið framhjá leikkonunni.

Eftir að þau skildu að borði og sæng reyndi Robin ýmislegt til að fá Paulu aftur og gaf meira að segja út plötu sem heitir Paula sem er stútfull af lögum um leikkonuna.

Hjónin eiga fjögurra ára dreng saman sem heitir Julian.


Tengdar fréttir

Robin Thicke búinn að gefast upp

Söngvarinn Robin Thicke er búinn að gefast upp á því að vinna fyrrum eiginkonuna, Paulu Patton, aftur á sitt band.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×