Lífið

„Ég prófaði Grindr nokkrum sinnum“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Marc Jacobs.
Marc Jacobs. vísir/getty
Fatahönnuðurinn Marc Jacobs segist hafa skráð sig á Grindr, smáforrit sem ætlað er fyrir samkynhneigða svo þeir geti kynnst öðrum samkynhneigðum, þegar hann var í sambandi með brasilísku klámstjörnunni Harry Louis.

„Ég prófaði Grindr nokkrum sinnum. Ég og Harry ákváðum að búa til síðu á Grindr. Og ég gerði það og hitti nokkra,“ segir Marc í viðtali við Paper. Hann setti meira að segja mynd af sér á síðuna og reyndi ekki að fela hver hann væri í raun og veru.

„Mér er eiginlega alveg sama. Ég er búinn að tala um hárígræðsluna, ég er búinn að tala um fíkniefnavandamál mín, ég er búinn að tala um áfengisvanda minn, ég hef talað um kynlíf. Mér finnst bara vera betra að vera hreinskilinn um þessa hluti. Mér finnst það vafasamt og ég treysti ekki fólki sem afneitar mannlegri eðlisávísun.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×