Frelsissvipting á jólanótt: Áfram í gæsluvarðhaldi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. október 2014 14:12 Vísir/Getty
Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir karlmanni sem dæmdur var í sex ára fangelsi í héraði í maí fyrir líkamsárás á hendur barnsmóður sinni og fyrrverandi unnustu á jólanótt. Maðurinn áfrýjaði dómnum til Hæstaréttar en hefur setið óslitið í gæsluvarðhaldi frá því frá því hann var handtekinn í íbúð konunnar í Mosfellsbæ. Maðurinn verður í gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur í Hæstarétti en þó ekki lengur en til 30. janúar. Maðurinn, sem er íslenskur en var búsettur í Noregi, hélt konunni og tveggja ára gamalli dóttur þeirra, nauðugri í íbúð hennar frá miðnætti á aðfangadagskvöld og þar til henni tókst að flýja um klukkan sex um morguninn. Sérsveit lögreglu var kölluð út til að yfirbuga manninn en hann hafði bæði hótað konunni og barninu, sem enn var í íbúðinni, lífláti. Konan, sem er rétt rúmlega tvítug, hafði boðið manninum að verja jólunum með þeim mæðgum þar sem hann átti fáa að hér á landi. Þau höfðu hætt saman tæpu ári fyrr eftir þriggja ára samband. Maðurinn var kominn í samband með annarri konu sem henti honum út á aðfangadagskvöld. Þá hringdi hann í konuna sem bauð honum í heimsókn sem fyrr segir. Maðurinn byrjaði strax að tala illa um nýjan kærasta barnsmóður sinnar. Þegar konan tók ekki undir með honum réðst maðurinn á hana.Hélt hníf að hálsi hennar Í gæsluvarðhaldsúrskurðinum kemur fram að maðurinn hafi beitt barnsmóður sína ofbeldi og meðal annars rispað hana með hnífi á meðan á frelsissviptingunni stóð. Tók hann símann af konunni svo hún gæti ekki hringt eftir aðstoð. Þá hafi hann þröngvað henni til samræðis og kynferðismaka í eldhúsi íbúðarinnar. Fyrst hafi hann þröngvað konunni til munnmaka með því að hóta að skera hana á háls. Þvínæst hafi hann rifið nærbuxur hennar og þröngvað konunni til samræðis með því að halda hnífi að hálsi hennar. Talið er að það muni valda ótta og hneyklsun í samfélaginu og særa réttarvitund almennings ef maðurinn gengur laus á meðan beðið er eftir því að Hæstiréttur taki áfrýjun hans fyrir. Áfrýjunarstefna var gefin út 23. júní, frumgögn málsins eru komin til ríkissaksóknara og verður ágrip tilbúið fljótlega. Ekki er talið um óeðlilegan drátt á málinu að ræða að því er segir í gæsluvarðhaldsúrskurðinum. Maðurinn verður áfram í gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur í Hæstarétti en þó ekki lengur en til fimmtudagsins 30. janúar.Dóm Hæstaréttar má lesa hér.
Tengdar fréttir Verður í gæsluvarðhaldi í fjórar vikur til viðbótar Karlmaðurinn sem grunaður er um að hafa haldið barnsmóður sinni og tveggja ára barni þeirra nauðugu í íbúð hennar á jólanótt verður í gæsluvarðhaldi í fjórar vikur til viðbótar á grundvelli almannahagsmuna en þetta kemur fram á vef RÚV. 2. janúar 2014 16:47 Áfram í gæsluvarðhald vegna gruns um ofbeldi, líflátshótanir og nauðgun Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur til 25 . febrúar yfir karlmanni sem grunaður er um að hafa haldið barnsmóður sinni og tveggja ára barni þeirra nauðgum á heimili konunnar í Mosfellsbæ á jólanótt. 4. febrúar 2014 17:51 Áfram í gæsluvarðhaldi vegna árásar á jólanótt Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir karlmanni sem ákærður er fyrir frelsissviptingu, líkamsárás, nauðgun og hótanir gagnvart barnsmóður sinni og fyrrverandi unnustu. 16. maí 2014 18:21 Hélt barnsmóður sinni og barni nauðugum á jólanótt Maður er grunaður um að hafa haldið barnsmóður sinni og eins árs gömlu barni þeirra nauðugum í íbúð í Mosfellsbænum síðastliðna nótt auk þess að hafa beitt konuna ofbeldi. 26. desember 2013 18:30 Mest lesið Farið yfir dóminn: Albert metinn trúverðugri en konan Innlent Íslendingar eiga ekki að aðlaga sig innflytjendum heldur öfugt Innlent Uppgjör á sögulegri heimsókn: Klæðaburður forsetamanns og umdeild ræða Innlent Fær mun minni fjárstuðning frá almenningi Erlent Þriggja bíla árekstur á Miklubraut Innlent „Við þolum ekki þetta ástand mikið lengur“ Innlent Tveir slasaðir í alvarlegu umferðarslysi Innlent Banvænustu árásirnar í miðborg Beirút hingað til Erlent Ekki allir sem geta leitað í bakland eftir barnapössun Innlent Skæð fuglaflensa í hröfnum og hettumáfum Innlent Fleiri fréttir Íslendingar eiga ekki að aðlaga sig innflytjendum heldur öfugt Skæð fuglaflensa í hröfnum og hettumáfum Þriggja bíla árekstur á Miklubraut Engin afsökun lengur fyrir því að mæta ekki í brjóstaskimun Tveir slasaðir í alvarlegu umferðarslysi Ekki allir sem geta leitað í bakland eftir barnapössun Farið yfir dóminn: Albert metinn trúverðugri en konan Uppgjör á sögulegri heimsókn: Klæðaburður forsetamanns og umdeild ræða „Við þolum ekki þetta ástand mikið lengur“ Ekki útilokað að fleiri skólar bætist í hópinn Verkfallsnemendur með áhyggjur af náminu og tendrun jólageitarinnar Skýrist á mánudag hvort læknar fari í verkfall Misspennt fyrir verkfalli: „Þetta er fínt, meira frí“ Fjármálaráðherra búinn að endurskoða þjóðlendukröfur Hægir á landrisi Samið um flug til Eyja næstu þrjá vetur Sigmundur komst á forsíðuna en ekki Messi Rannsaka tengsl sköpunargáfu og ADHD Verkfall samþykkt með 100 prósent atkvæða í leik- og grunnskólum Reyna aftur að leggja niður Ríkisútvarpið ohf. Kæra ferðaþjónustufyrirtæki fyrir framkvæmdir í íshellum Efast um að málinu verði áfrýjað Ekki síst erfitt þegar menn eru fjölskylduvinir til margra áratuga Starfsmenn þessara skóla fara í verkfall Óeðlilegt að Guðmundur Ingi hafi hringt í ríkislögreglustjóra Albert sýknaður Komugjald í brjóstaskimun lækkar gríðarlega Þú finnur Íslendinga út um allan heim í fluginu Halla talar ensku við kónginn: „Ég held að það sé kannski nýi tíminn“ Riddari kannana mætir í Samtalið Sjá meira
Verður í gæsluvarðhaldi í fjórar vikur til viðbótar Karlmaðurinn sem grunaður er um að hafa haldið barnsmóður sinni og tveggja ára barni þeirra nauðugu í íbúð hennar á jólanótt verður í gæsluvarðhaldi í fjórar vikur til viðbótar á grundvelli almannahagsmuna en þetta kemur fram á vef RÚV. 2. janúar 2014 16:47
Áfram í gæsluvarðhald vegna gruns um ofbeldi, líflátshótanir og nauðgun Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur til 25 . febrúar yfir karlmanni sem grunaður er um að hafa haldið barnsmóður sinni og tveggja ára barni þeirra nauðgum á heimili konunnar í Mosfellsbæ á jólanótt. 4. febrúar 2014 17:51
Áfram í gæsluvarðhaldi vegna árásar á jólanótt Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir karlmanni sem ákærður er fyrir frelsissviptingu, líkamsárás, nauðgun og hótanir gagnvart barnsmóður sinni og fyrrverandi unnustu. 16. maí 2014 18:21
Hélt barnsmóður sinni og barni nauðugum á jólanótt Maður er grunaður um að hafa haldið barnsmóður sinni og eins árs gömlu barni þeirra nauðugum í íbúð í Mosfellsbænum síðastliðna nótt auk þess að hafa beitt konuna ofbeldi. 26. desember 2013 18:30