Lífið

Tvær kengúrur takast á í íbúðahverfi

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Kengúrur eiga það til að takast harkalega á.
Kengúrur eiga það til að takast harkalega á.
Það er engum ofsögum sagt að kengúrur sláist eins og ef um box væri að ræða. Nýverið náði ástralskur maður myndbandi af tveimur kengúrum í slagsmálum á götunni fyrir utan heima hjá sér.

Myndbandið er tekið upp í New South Wales-ríki en þar, líkt og annarsstaðar í Ástralíu, eru kengúrur algeng sjón. Það er þó sjaldan sem slagsmál, í miðju íbúðahverfi, hafa náðst á myndband.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×