Lífið

Allsnakin og ólétt

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Söngkonan Kelly Rowland gengur með sitt fyrsta barn undir belti og situr fyrir í fallegri óléttumyndatöku fyrir tímaritið ELLE.

Ljósmyndarinn Lance Gross tók myndirnar þar sem Kelly sést allsnakin og felur söngkonan sitt allra heilagasta með höndunum.

„Ég er spennt að fæða barn í þennan heim og fallegasti parturinn er líklegast sá að ég deili reynslunni með eiginmanni mínum,“ segir Kelly í samtali við tímaritið en hún giftist umboðsmanni sínum, Tim Witherspoon, í maí á þessu ári.

Henni er sama þó fólk gagnrýni sig fyrir að sitja fyrir nakin og ólétt.

„Það er ótrúlegt að fylgjast með líkamanum ganga með manneskju. Líkamann ætti að hylla.“

Í dragt með bumbu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×