Tónlistarkennarar samþykktu að fara í verkfall Aðalsteinn Kjartansson skrifar 6. október 2014 16:59 Sigrún segist ánægð með kjörsóknina. Vísir / Anton
Vinnustöðvun var samþykkt með miklum meirihluta. Þetta eru niðurstöður atkvæðagreiðslu kennara í Félagi tónlistarkennara sem lauk í dag. Kennarar í félaginu eru þeir einu innan vébanda Kennarasambands Íslands sem ekki hafa náð samningum. Búið er að reyna samninga síðastliðna níu mánuði án árangurs. Sigrún Grendal, formaður félags tónlistarkennara, segir að mikill meirihluti hafi samþykkt verkfallsboðunina. „Atkvæði greiddu 77,5 prósent og það voru 93,88 þeirra sem sögðu já,“ segir hún um niðurstöðurnar. „Niðurstaðan er skýr og endurspeglar það sem við höfum fundið á félagsmönnum.“ Kosningin var rafræn og olli það nokkrum erfiðleikum. „Við erum gríðarleg ánægð með kjörsóknina því að það elti okkur sú ólukka að alla þessa daga var bilun hjá þeirri bankastofnun sem dreifir íslyklum í heimabanka,“segir hún. „Menn eru búnir að vera sveittir og hafa haft mikið fyrir hverju einasta atkvæði.“ Niðurstöðurnar eru komnar í hendur ríkissáttasemjara og samninganefndar sveitafélaga. Atkvæðagreiðslan hófst 30. september síðastliðinn og stóð til klukkan tvö í dag. Vinnustöðvunin hefst 22. október næstkomandi og mun hún hafa talsverð áhrif á tónlistarkennslu í landinu. Næsti samningafundur hefur verið boðaður á morgun.
Mest lesið Epstein-skjölin birt Erlent Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Innlent Svona á að raða í uppþvottavélina Innlent Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Erlent Talinn hafa komið til landsins til að stela Innlent Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Innlent Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Innlent Halla forseti opnar sig um kynferðisbrot í æsku Innlent Íslendingar í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku Innlent Reynslubolti kveður lögregluna Innlent Fleiri fréttir Svona á að raða í uppþvottavélina „Verður vonandi til að styrkja íslensku einkareknu miðlana“ Talinn hafa komið til landsins til að stela Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Framlög til einkarekinna fjölmiðla næstum tvöfaldast Meðferð við spilafíkn loks niðurgreidd af Sjúkratryggingum Kílómetragjaldið bitni helst á sparneytnum eldsneytisbílum Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Íslendingar lentu í alvarlegu slysi í Suður-Afríku Stóraukið fjármagn til Frú Ragnheiðar Standi ekki til að leggja niður Rás 2 þrátt fyrir boðaða heimild Bæta hjóla- og göngustíga í Breiðholti, Grafarholti og í Elliðaárdal Birkir vill þriðja til fjórða sæti hjá Samfylkingu Lítið snjóflóð féll á snjótroðara í Hlíðarfjalli Tímamótasamningur Sjúkratrygginga og SÁÁ Hætta á snjóflóðum til fjalla í Eyjafirði Hluti auglýsingatekna Rúv renni til einkarekinna fjölmiðla „Við látum alltaf taka okkur í bakaríið á endanum“ Götulokanir í miðborginni á Þorláksmessu og um áramót Logi kynnti aðgerðir í þágu fjölmiðla Einn handtekinn í aðgerð sérsveitar á Selfossi Bústaðakirkja opnuð vegna slyssins í Suður-Afríku Stormur gæti skollið á landið á aðfangadag Kílómetragjaldið verður að veruleika og hvassviðri um jólin Funduðu í 320 klukkustundir og afgreiddu 37 frumvörp Telja innbrot og umferðarlagabrot mesta vandamálið Katrín orðin stjórnarformaður Hæstiréttur vill ekki hlýða á Kristján Markús Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Halla forseti opnar sig um kynferðisbrot í æsku Sjá meira