Sjónvarpskona stendur vaktina á nýjasta kaffihúsi bæjarsins Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. október 2014 16:54 Á Kaffihúsi Vesturbæjar síðdegis í dag. Vísir/Valli „
Þetta er búið að vera alveg magnaður dagur, alveg yndislegur,“ segir Margrét Marteinsdóttir, vert á Kaffihúsi Vesturbæjar sem opnaði í morgun. Kaffihúsið er á horni Hofsvallagötu og Melhaga gegnt Sundlaug Vesturbæjar. Að staðnum standa athafnamaðurinn Pétur Marteinsson, bróðir Margrétar, ásamt Gísla Marteini Baldurssyni og fleirum. Sami hópur stendur einnig að KEX Hostel við Skúlagötu. Húsið var opnað klukkan 7:30 sem verður opnunartími á virkum dögum en um helgar opnar klukkan níu. Opið verður til 23 á kvöldin. „Það ríkir eintóm hamingja og gleði. Fólk er svo þakklátt fyrir að það sé komið kaffihús í Vesturbæinn,“ segir Margrét. Bræðurnir sem reki Melabúðina hafi komið færandi hendi með stærðarinnar blómvönd í morgun og fagna greinilega nýja nágranna sínum. Margrét er flestum kunn sem fréttakona á RÚV og segja má með sanni að hún hafi söðlað um. En hvernig gengur henni á bak við afgreiðsluborðið og við kaffivélina? „Það gengur bara vel. Ég er svo fljót að læra. Sérstaklega af því þetta er svo skemmtilegt,“ segir Margrét sem nýtur þeirra forréttinda að eiga heima á Melhaganum. Varla taki því að fara í skóna til að skjótast milli húsa. „Ég hendist bara á milli á tásunum,“ grínast Margrét. Sæti eru fyrir 45 á kaffihúsinu sem verður með áfengisleyfi auk þess sem boðið verður upp á mat. Margrét tekur þó skýrt fram að um kaffihús sé að ræða en ekki fótboltabar. „Þetta er meira fyrir þá sem vilja koma og fá sér einn fyrir svefninn.“Pétur Marteinsson var á sínum stað í dag.Vísir/ValliMargrét Marteinsdóttir bak við afgreiðsluborðið.Vísir/ValliVísir/ValliVísir/VAlliVísir/Valli
Mest lesið „Undrabarn“ keppir á undanþágu og tekur pabba í kennslustund Lífið María Thelma og Steinar Thors héldu brúðkaup ársins Lífið Flautað á dúfurnar á Eyrarbakka og þær koma heim Lífið Krakkatían: Flugfélög, landafræði og krakkalög Lífið Fréttatía vikunnar: Pólitík, andlát og bíó Lífið Er alltaf hrædd Lífið „Hugleikið hver fær að stunda kynlíf og hver ekki“ Tónlist Bar fyrir sig að hafa eitt sinn verið í strákabandi Lífið Faðir Payne las minningarorð og þakkaði aðdáendum Lífið Rekinn af útgáfunni stuttu fyrir andlátið Lífið Fleiri fréttir Krakkatían: Flugfélög, landafræði og krakkalög „Undrabarn“ keppir á undanþágu og tekur pabba í kennslustund Flautað á dúfurnar á Eyrarbakka og þær koma heim Faðir Payne las minningarorð og þakkaði aðdáendum Fréttatía vikunnar: Pólitík, andlát og bíó María Thelma og Steinar Thors héldu brúðkaup ársins Cheryl kvartar yfir fjölmiðlaumfjöllun um Liam Payne Bar fyrir sig að hafa eitt sinn verið í strákabandi Litfögur íbúð með mikinn karakter Haustförðunin sem hefur slegið í gegn á TikTok Þetta eru höfundar Áramótaskaupsins 2024 Níu ára og notar hestastudda sálfræðimeðferð til að komast yfir hamfarirnar Rekinn af útgáfunni stuttu fyrir andlátið Bingó í beinni á sunnudag Er alltaf hrædd One Direction sendir frá sér yfirlýsingu: „Við erum algjörlega miður okkar“ Stuðningur fjölskyldunnar ekki sjálfsagður Frumkvöðull í Detroit teknói í Gamla bíó í nóvember Þorvaldur Davíð og Hjálmar Örn í eina sæng Fjölskylda Liam Payne biður um andrými Malín Agla og Svavar eiga von á öðru barni „Ef ég á að vera hreinskilin þá var þetta bara svæsið einelti“ Símtal í neyðarlínu varpar ljósi á atburðarásina Harðlega gagnrýnd fyrir að birta myndir af líki Liam Payne Loka Sæbraut á laugardag vegna kvikmyndatöku Liljan er vinsælasta lagið á Dalvík Stjörnurnar minnast Liam Payne: „Þessar fréttir eru hrikalegar, ég er orðlaus“ „Ég myndi aldrei fara í samband með einhverjum fávita“ Liam Payne úr One Direction látinn Páll Óskar kveikti í kofanum Sjá meira