Lífið

Ekkert sexí að leika í kynlífsatriði

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Patrick Wilson og Brooklyn Decker leika aðalhlutverkin í kvikmyndinni Stretch sem frumsýnd verður á næstunni.

Leikstjórinn Joe Carnahan er búinn að setja myndbrot á netið þar sem skyggnst er bak við tjöldin við gerð myndarinnar.

Atriðið sem fylgst er með er kynlífsatriði þar sem Patrick og Brooklyn njóta ásta. Í myndbrotinu sést vel að það er ekkert sérstaklega kynþokkafullt að leika í kynlífssenu í bíómynd. Er það frekar spaugilegra en hitt eins og sést í myndbandinu hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×