Enski boltinn

Cardiff tapaði fyrir botnliðinu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Aron Einar í baráttu við markaskorarann Zoko í kvöld.
Aron Einar í baráttu við markaskorarann Zoko í kvöld. Vísir/Getty
Ófarir Cardiff halda áfram í ensku B-deildinni en í kvöld tapaði liðið fyrir botnliði Blackpool á útivelli, 1-0.

Blackpool vann ekki leik í fyrstu tíu umferðum tímabilsins en tókst að lyfta sér úr botnsætinu með sigrinum í kvöld, 1-0. Francois Zoko skoraði eina markið á 64. mínútu.

Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn í liði Cardiff City sem er í fjórtánda sæti deildarinnar með þrettán stig. Liðið vann fyrstu tvo leiki sína í sumar en hefur síðan þá aðeins unnið einn leik af tíu.

Russel Slade, sem hætti sem knattspyrnustjóri Leyton Orient í síðustu viku, fór með liðinu til Blackpool í kvöld en talið er að hann verði skipaður knattspyrnustjóri Cardiff á næstu dögum. Hann verður þá eftirmaður Norðmannsins Ole Gunnars Solskjær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×