Viðskipti innlent

Sjávarútvegsfyrirtæki ein af burðarstoðum stjórnmálaflokka

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
9,3 milljónir af 32 milljóna styrkjum frá fyrirtækjum til stjórnmálaflokka komu frá aðilum í sjávarútvegi. Tölurnar byggja á gögnum frá Sjálfstæðisflokki, Samfylkingu og Bjartri framtíð en ekki er búið að birta ársreikninga annarra flokka á þingi.
9,3 milljónir af 32 milljóna styrkjum frá fyrirtækjum til stjórnmálaflokka komu frá aðilum í sjávarútvegi. Tölurnar byggja á gögnum frá Sjálfstæðisflokki, Samfylkingu og Bjartri framtíð en ekki er búið að birta ársreikninga annarra flokka á þingi. Vísir / Samsett mynd
Þriðjungur af öllum styrkjum lögaðila til Sjálfstæðisflokksins komu frá fyrirtækjum tengdum sjávarútvegi. Upphæð styrkjanna nam 7,9 milljónum króna. Alls fékk flokkurinn 24 milljónir króna í styrki frá lögaðilum. Fyrirtæki í fjármálatengdri starfsemi, svo sem bankar og tryggingafélög, styrktu flokkinn um tæpar fjórar milljónir króna, sem svarar til 16 prósenta af öllum styrkjum lögaðila til flokksins.

Bjarni Benediktsson er formaður Sjálfstæðisflokksins. Flokkurinn fékk umtalsverða fjármuni frá fyrirtækjum á síðasta ári.
Þetta kemur fram í gögnum sem Ríkisendurskoðun hefur birt um fjármál flokkanna tveggja. Von er á upplýsingum um Framsóknarflokk og Vinstri græna á næstunni. Unnið er að yfirferð á ársreikningum Framsóknar hjá Ríkisendurskoðun. Vinstri grænir höfðu ekki skilað reikningi á föstudag.



Áberandi á öðrum listum


Sjávarútvegs- og fjármálafyrirtæki eru burðarstoðin í rekstri flokksins. Fyrirtæki í þessum rekstri eru áberandi hjá öðrum flokkum líka en til samanburðar fékk Samfylkingin 32 prósent af sínum styrkjum þeim. Upphæðirnar sem um ræðir eru líka mun lægri. Þannig styrktu sjávarútvegsfyrirtæki Samfylkinguna um 900 þúsund krónur en Sjálfstæðisflokkinn um áðurnefndar 7,9 milljónir.

Smásölufyrirtæki, til að mynda matvörubúðir og bensínstöðvar, eru einnig áberandi á listanum. Fyrirtæki í þeim flokki styrktu Samfylkinguna um 1,3 milljónir króna, sem er 23 prósent styrkja sem flokkurinn fékk frá lögaðilum. Sjálfstæðisflokkurinn fékk 2,7 milljónir frá smásölufyrirtækjum en það er um 11 prósent af styrkjum sem flokkurinn fékk frá fyrirtækjum.

Sama mynstur og hjá Sjálfstæðisflokknum sést þegar styrkir til Samfylkingarinnar eru skoðaðir. Sjávarútvegs- og fjármálafyrirtæki eru fyrirferðamest. Árni Páll Árnason er formaður flokksins.
Tugmilljóna leigutekjur

Þrátt fyrir tugmilljóna styrki frá fyrirtækjum til flokkanna skipta ríkisstyrkir þá líklega mestu máli. Samfylkingin fékk tæpar hundrað milljónir króna í styrki frá ríkinu á síðasta ári og Sjálfstæðisflokkurinn fékk 85 milljónir króna. Þess fyrir utan hafa flokkarnir ýmsa aðra tekjumöguleika, til að mynda leigu á fasteignum og auglýsingasölu í fréttabréfum.

Slík starfsemi skilaði Sjálfstæðisflokknum tæpar 84 milljónir króna á síðasta ári. Þar af námu leigutekjur flokksins og aðildarfélaga 43,6 milljónum króna. Þetta er mun meira en hjá Samfylkingunni sem hafði 8,8 milljónir króna tekjur af öðru en styrkjum.

Fáir styrkir til Bjartrar framtíðar

Fjárhagsupplýsingar Bjartrar framtíðar liggja líka einnig fyrir en styrkir til flokksins frá fyrirtækjum námu í heild 2,3 milljónum króna. Þeir komu frá tuttugu mismunandi fyrirtækjum. Til samanburðar styrktu 38 sjávarútvegsfyrirtæki Sjálfstæðisflokkinn og 19 fyrirtæki í fjármálastarfsemi. 

Sé horft á hlutfall styrkja hjá Bjartri framtíð kemur kunnuglegt mynstur í ljós. Mestu peningarnir koma frá fyrirtækjum í fjármálastarfsemi, smásölu og sjávarútvegi, eða 77 prósent styrkjanna. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×