Hlutabréfaverð í Netflix hrynur Aðalsteinn Kjartansson skrifar 16. október 2014 17:00 Höfuðstöðvar Netflix. Wikipedia
Hlutabréfaverð í Netflix hefur lækkað um 27 prósent eftir að greint var frá því að fyrirtækið hafi verið talsvert frá markmiðum sínum um aukningu áskrifenda. Á þriðja ársfjórðungi tókst Netflix að bæta við sig þremur milljónum áskrifenda en markið hafði verið sett á 3,7 milljónir. Þá var fyrirtækið einnig talsvert frá markmiði sínu um að ná inn 1,3 milljónum nýjum áskrifendum í Bandaríkjunum, sem er einn mikilvægasti markaður þess. Talið er að verðhækkun á áskriftum vestanhafs um einn dollar, sem tók gildi fyrir fimm mánuðum, sé helsta skýringin á þessu. „Örlítið hærra verð skilar sér í örlítið hægari vexti,“ sagði Reed Hastings, framkvæmdastjóri Netflix, í bréfi til hluthafa. Aukin samkeppni hefur færst á streymismarkaðinn að undanförnu og á Netflix undir högg að sækja. Amazon er í virkir samkeppni við fyrirtækið um áskrifendur og HBO tilkynnti í vikunni um áform sín að bjóða áskriftir án kapaláskriftar.
Netflix Mest lesið Trump boðar „frelsun“ Bandaríkjanna Viðskipti erlent Vilja minnka líkurnar á því að vinna í Lottóinu Viðskipti innlent Milljarður í afgang í Garðabæ Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Í fullkomnu frelsi: „Þar sem er heyskapur er ég“ Atvinnulíf Plasttappamálið flaug í gegnum þingið Neytendur „Við bara tókum íslensku brjáluðu bjartsýnina á þetta“ Atvinnulíf Íhuga hærri tolla á alla Viðskipti erlent „Væri samt mjög til í að vera betri söngvari“ Atvinnulíf Útflutningur gefur eftir en einkaneyslan stígur fram á sviðið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Trump boðar „frelsun“ Bandaríkjanna Íhuga hærri tolla á alla Facebook hættu að beina auglýsingum að konu eftir að hún lögsótti Meta Boeing fær að smíða orrustuþotur framtíðarinnar Hótar himinháum áfengistollum á Evrópu Svara tollum Trumps: „Við munum ekki standa aðgerðarlausir hjá“ „Alvarlegt viðskiptastríð“ hafið Northvolt í þrot Vill refsa Kanada svo lesið verði um það í sögubókum Óvænt verkföll á flugvöllum í Þýskalandi hafa víðtæk áhrif Markaðir bregðast illa við tollahækkunum Trump Skype heyrir brátt sögunni til Sjá meira