Lífið

Kennir karlmönnum að tæla konur í neðanjarðarlestinni

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Glaumgosinn Brian Robinson gaf út bókina How to Meet Women on the Subway þar sem hann kennir karlmönnum að taka konur á löpp er þær bíða eftir neðanjarðarlestinni.

„Það eru alltaf fallegar konur þar - í tonnatali,“ segir Brian í viðtali við New York Post. Hann segist hafa farið á stefnumót með um fimm hundruð konum eftir að hann byrjaði að tæla þær á neðanjarðarlestarstöðvum árið 1999.

Brian segir það vænlegast til árangurs að láta eins og maður sé týndur á lestarstöðvunum. Því næst spyr hann konur hvaðan þær séu því 97 prósent kvenna í New York eru ekki frá New York að hans sögn. Svo segist hann vilja heimsækja heimabæ þeirra og spyr hvort hann megi fá tölvupóstfang þeirra. Leynivopnið er, að hans mati, að sýna konunum áhuga en ekki reyna of mikið við þær. 

„Þú þarft bara að fara upp að þeim og tala - það er ekki sárt,“ segir Brian.

Nokkur ráð til karlmanna frá Brian:

* Ekki reyna við þær á háannatíma

* Verið alltaf með far í lestina og borgið fyrir hana ef hún finnur ekki pening

* Verið alltaf í jakkafötum og haldið á skjalatösku - það sýnir styrk og öryggi, þó þú búir hjá móður þinni

* Spyrjið hvaðan hún sé og ef hún er heimamaður segið: Ég hélt að þú værir frönsk

* Ekki spjalla of lengi. Farið úr lestinni um leið og þið fáið tölvupóstfang. Látið hana vilja meira

* Bíðið í sextíu klukkustundir með að hafa samband við hana






Fleiri fréttir

Sjá meira


×