Lífið

Birtir djarfa mynd af rassi sínum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Fyrirsætan Amber Rose birti mynd af afturenda sínum á Instagram í gær en á myndinni er Amber aðeins klædd í efnislítinn sundbol.

Stutt er síðan Amber sótti um skilnað við tónlistarmanninn Wiz Khalifa en í kassamerkjum við myndina kallar hún sig meðal annars gullgrafara og druslu.

Amber opnaði sig fyrir stuttu um skilnaðinn á Twitter en hún á um tvo milljón fylgjendur á samfélagsmiðlinum.

„Morgnarnir eru sérstaklega erfiðir,“ tísti Amber. „Sársaukinn...mér líður eins og besti vinur minn hafi dáið þegar ég vakna á hverjum morgni...ég vissi ekki hvað sorg var fyrr en nú,“ bætti hún við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×