Lífið

Hefur stundað kynlíf með rúmlega sjö hundrað bílum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Edward Smith var í viðtali við breska sjónvarpsþáttinn This Morning í dag og sagði þáttarstjórnendunum Philip Schofield og Amanda Holden að hann hefði stundað kynlíf með rúmlega sjö hundruð bílum á lífsleiðinni.

Philip og Amanda áttu erfitt með að taka Edward alvarlega en hann sagði að áhugi hans á bílum hefði kviknað þegar hann var ungur og að hann hafi misst sveindóminn með Volkswagen-bjöllu þegar hann var táningur.

„Ég freistaðist eitt kvöld til að fara út og gæla blíðlega við bílinn. Og hann gerði eitthvað fyrir mig, það vakti upp eitthvað innra með mér,“ sagði Edward. Hann stingur þó ekki lim sínum inn í bílinn heldur faðmar og gælir við bílinn og talar einnig við hann.

Edward gælir við Vanilla.
Hann er nú ástfanginn af hvítri Volkswagen-bjöllu sem heitir Vanilla og hefur verið í lífi hans síðan árið 1982. Vanilla á sérstakan stað í hjarta Edwards en þó gamnar hann sér stundum með trukkum sem heita Ginger og Cinnamon.

Edward hefur átt mennskar kærustur í gegnum tíðina en þær ná ekki að uppfylla þarfir hans líkt og bílarnir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×