Lífið

Þetta eru áhrifamestu unglingar heims

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Lorde, Chloe og Jenner-systurnar.
Lorde, Chloe og Jenner-systurnar.
Tímaritið Time hefur tekið saman lista yfir þá 25 unglinga sem hafa hvað mest áhrif í heiminum.

Það kennir ýmissa grasa á listanum en unglingarnir eru ekki nefndir í neinni sérstakri röð.

Meðal þeirra sem komast á listann er Nóbelsverðlaunahafinn Malala Yousafzai, 17 ára, söngkonan Lorde, 17 ára, og Vine-stjarnan Nash Grier, 16 ára.

Þá komast systurnar Kylie, 17 ára, og Kendall Jenner, 18 ára, á blað sem og Modern Family-stjarnan Rico Rodriguez, 16 ára og leikkonan Chloë Grace Moretz, 17 ára.

Hægt er að sjá listann í heild sinni hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×