Lífið

Átta ára drengur dansar Dirty Dancing-dansinn

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Lainie Kristina setti myndband á Facebook-síðu sína af syni sínum, Charlie, átta ára, að dansa við lokadansinn í kvikmyndinni Dirty Dancing með Patrick Swayze og Jennifer Grey í aðalhlutverkum.

Dirty Dancing var frumsýnd árið 1987, löngu áður en Charlie kom í heiminn, en drengurinn er búinn að horfa nokkrum sinnum á myndina og læra dansinn eins og sést í meðfylgjandi myndbandi.

„Hann hefur líklegast horft á hana tíu til tólf sinnum. Hann elskar að dansa og getur ekki setið kyrr þegar hann er að horfa á tónlistarmyndbönd eða annað þar sem dans kemur við sögu,“ segir Lainie í samtali við Buzzfeed.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×