Lífið

Richard Gere aftur á markaðinn

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Richard og Padma.
Richard og Padma. vísir/getty
Leikarinn Richard Gere og stjörnukokkurinn Padma Lakshmi eru hætt saman eftir sex mánaða samband samkvæmt Page Six.

Padma var spurð út í ástarlíf sitt í sjónvarpsþætti fyrir stuttu og þá sagðist hún vera á lausu samkvæmt frétt Page Six.

Richard og Padma byrjuðu saman í apríl, stuttu eftir að leikarinn skildi við eiginkonu sína til ellefu ára, Carey Lowell.

Padma var gift höfundinum Salman Rushdie í þrjú ár áður en þau skildu árið 2007. Þá deitaði hún milljarðamæringinn Teddy Forstmann áður en hann lést úr krabbameini í heila árið 2011.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×