Lífið

Þetta gæti verið flottasta bónorð ársins

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Sjónvarpsstöðin NBC hjálpaði ungum manni, Bret, að biðja kærustu sinnar, Jovan, til að kynna nýja gamanþáttinn sinn, Marry Me, sem frumsýndur verður vestan hafs í kvöld.

Bónorðið var að sjálfsögðu tekið upp og má sjá herlegheitin í meðfylgjandi myndbandi.

Bret og Jovan kynntust í heimabænum hennar Chicago og rákust síðan á hvort annað í Orlando viku seinna. Þau felldu hugi saman og voru í fjarsambandi um tíma áður en hún flutti til Los Angeles fyrr á árinu til að vera með honum.

Þegar bónorðið átti sér stað hafði hún ekki séð fjölskyldu og vini sína svo mánuðum skipti en Bret fékk alla til að vera viðstadda þegar hann bað um hönd hennar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×